Vinátta
Tengsl sem byggjast upp yfir tíma og endast langt út fyrir fundina sjálfa.
Um RT12
Round Table 12 Reykjavík var stofnað 3. maí 2003 og telur í dag 16 félaga sem koma úr ólíkum áttum, störfum og bakgrunni.
Round Table er alþjóðleg hreyfing ungra karla sem byggir á vináttu, frumkvæði og virkri þátttöku. RT12 er hluti af Round Table Ísland og starfar óháð stjórnmálaflokkum og trúfélögum.
Hjá okkur skiptir ekki máli við hvað þú starfar eða hvaðan þú kemur. Það sem sameinar hópinn er áhugi á að kynnast nýju fólki, prófa eitthvað nýtt og leggja sitt af mörkum.
RT12 tekur reglulega þátt í sjálfboðavinnu, fjáröflun og öðrum verkefnum sem láta gott af sér leiða.
Einkunnarorð
Tileinka · Aðlaga · Bæta
Gildi
Tengsl sem byggjast upp yfir tíma og endast langt út fyrir fundina sjálfa.
Dagskráin verður til hjá félögunum sjálfum. Sá sem fær hugmynd kemur henni í framkvæmd.
Við mætum, tökum þátt og leggjum okkar af mörkum í starfinu.
Ólíkar skoðanir og bakgrunnur eru styrkur. Við komum fram við hvern annan af virðingu.
Við nýtum krafta hópsins í verkefni sem gagnast samfélaginu og vinnum þau af ábyrgð.
Við tökum á móti nýjum félögum í gegnum árlegan nýliðafund. Fyrsta skrefið er einfalt.