Persónuvernd

Meðferð persónuupplýsinga

Hér er útskýrt hvaða upplýsingum Round Table 12 Reykjavík safnar, í hvaða tilgangi þær eru notaðar og hversu lengi þær eru geymdar.

Ábyrgðaraðili

Round Table 12 Reykjavík er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem safnast í gegnum þessa vefsíðu og skráningarform á vegum félagsins.

Skráning áhuga á félagsaðild

Upplýsingar sem þú sendir með skráningu áhuga eru eingöngu notaðar til að hafa samband við þig vegna RT12 og nýliðaferlisins. Þær eru ekki notaðar í markaðssetningu og ekki afhentar þriðja aðila í þeim tilgangi.

Skráning á Gústann

Upplýsingar sem safnast við skráningu á Gústann eru eingöngu notaðar til að skipuleggja og halda viðburðinn.

Vinnsluaðilar

Félagið notar í dag Google Forms og Google Sheets til að taka við og halda utan um skráningar. Upplýsingarnar eru því vistaðar hjá Google sem vinnsluaðila.

Varðveislutími

Upplýsingum er eytt þegar þeirra er ekki lengur þörf vegna þess ferlis sem þær tilheyra. Bókhaldsgögnum sem skylt er að varðveita samkvæmt lögum er þó haldið eftir í þann tíma sem lög kveða á um.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá aðgang að þeim upplýsingum sem félagið geymir um þig, láta leiðrétta þær eða óska eftir að þeim verði eytt. Slíkum beiðnum má koma á framfæri í gegnum þá tengiliðaleið sem félagið birtir.

[email protected]

Vefkökur og mælingar

Þessi vefsíða notar Google Analytics til að sjá hversu margir heimsækja síðuna og hvaða undirsíður eru skoðaðar. Það hjálpar okkur að meta hvað kemur að gagni.

Mælingar eru ekki settar í gang fyrr en þú hefur samþykkt þær. Ef þú hafnar er engin mælingavefkaka sett og engin gögn send. Þú getur skoðað alla síðuna óháð því hvað þú velur.

Upplýsingarnar eru notaðar til að skilja heimsóknir í heild, ekki til að rekja einstaklinga. IP-tölur eru nafnlausar, gögnin eru ekki notuð í markaðssetningu og engum auglýsingavefkökum er komið á. Google Ireland Limited er vinnsluaðili.